Nýtt líf !

Það er komin lítil stelpa í heiminn !  Á hádegi þennan yndislega sunnudag fæddist lítil stelpa, loksins komin stelpa í fjölskylduna, eftir 3 stráka og held ég að allir séu ofboðslega sáttir með það.  En Xavier "bróðir" minn var svo heppinn að fá litla stelpu í hendurnar sem Fanny er búin að bera undir belti síðustu 9 mánuðina.  Claire og Claude eru orðin amma og afi !  Er lífið ekki yndislegt ?  Si, la vie est belle...  Það kemst ekki mikið annað fyrir í heilanum á mér þessa stundina þar sem gleðin á heimilinu fyllir öll horn og skúmaskot.  Fleiri hlutir sem gera lífið ennþá yndislegra fyrir fjölskylduna.  Týndi "bróðir" okkar kemur heim í dag.  Alain sem bjó í Kanada kemur semsagt heim alfarið en við héldum að við myndum aldrei sjá hann, en plön geta breyst. 

Í mínu einkalífi eru líka hlutir sem gera lífið frábært.  Innan við mánuður er í að ég fái að sjá BRÓÐIR minn.  Já, alvöru bróðir minn.  Hann Björn Steinar kemur að heimsækja mig eftir akkurat einn mánuð og Íris (kærastan hans) kemur líka.  Svo skrýtið að ég sé aldrei búin að sjá hana en jú lífið heldur víst áfram þó svo ég sé ekki viðstödd.  OG eftir 2 og hálfan mánuð fæ ég svo að sjá litla BRÓÐIR minn sem er víst ekki ennþá lítill og ef ég skil rétt er hann líklega búinn að ná mér.  Já, hann heldur áfram að stækka þó svo ég sé ekki viðstödd.  Og síðast en ekki síst mömmu og pabba !  Ég ætla að vona að þú séu ekki búin að breytast, kannski er mamma orðin stærri en ég og pabbi mjórri en ég, hver veit ?  Já allar sorgir og öll mín tár þau ætla að víkja frá. 

Í síðustu viku var ég með fyrirlestur um íslenskt skólakerfi.  Ég var búin að undirbúa mig alveg ofboðslega vel.  Tók upp og hlustaði margsinnis og áttaði mig á því að ég tala ekki jafn vel frönsku og ég hélt.  Ég er með alveg hrikalega sterkan íslenskan hreim sem áður hafði ég engan veginn áttað mig á, ég hélt að ég talaði alveg rosalega vel varla með hreim en nei ! Ég kvarta hins vegar ekki að hafa rekið mig á þetta, það gerir ekkert annað en að hjálpa mér að tala betur.  En ég skal svo segja ykkur eitt !  Ég stóð mig bara ansi vel, ég var rosalega sátt með þetta, var búin að undirbúa 10 min fyrirlestur en talaði í a.m.k 30 min og allir voru rosa ánægðir með litla Íslendinginn.  Þetta gleður lítið hjarta með fullkomnunaráráttu. 

Il faut que tu t'aime avant que quelqu'un peux t'aimer.  Meme chose avec ta voix.  Il faut d'abord que t'apprends a aimer ta voix avant que les autres peux l'aimer.  (Þú þarft að elska sjálfan þig áður en einhver annar getur elskað þig.  Það sama á við um röddina þína.  Fyrst þarf þú að læra að elska röddina þína áður en hinir geta elskað hana.)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

bara sma a frönsku, sem betur fer skildi eg thetta allt!! annars hefdi eg farid ad grata! mjög gott! thu ert greinilega mjög god i frönsku! heyrumst!

stebbi (IP-tala skráð) 21.1.2007 kl. 19:13

2 identicon

váá  ég skildi samt ekki alveg allt, en þetta er að koma ;) vá en ég gæti aldrei talað frönsku stanslaust í hálftíma! hehe, gott hjá þér ;) !!!!!!

klara (IP-tala skráð) 21.1.2007 kl. 19:41

3 identicon

Til hamingju með  lillabeibíið !  já hann litli bróðir þinn er allavega orðin stærri en ég, ég er ekki alveg að meðtaka það og get sagt þér að ég er alls ekki að fíla það alltof vel fyrr en varir verð ég lillabeibíið í okkar fjölsk.. en margur er knár þótt hann sé smár, kann því miður ekki stakt orð í frönsku svo að ég get ekki komið með þessa speki á frönsku..híhí...og til hamingju með fyrirlesturinn!:)

Anna Bryndís (IP-tala skráð) 21.1.2007 kl. 23:39

4 identicon

til hamingju með litlu "frænku" þína;* og vá hvað þú ert orðin sleip í frönskunni, að tala í hálftíma stanslausthehe....en flott þessi speki, ég er alveg sammála henni

Heiða (IP-tala skráð) 22.1.2007 kl. 20:06

5 identicon

Takk fyrir   já það er ekki við öðru að búast en að geta bjargað sér með frönskuna eftir næstum 5 mánaða dvöl hérna

Ásbjörg (IP-tala skráð) 23.1.2007 kl. 11:32

6 identicon

æjh frábært að heyra að þér líði svona vel! ég skemmti mér mjög vel við það að skoða myndirnar sem þú tókst.. heh.. mjög frumlegar og flottar! ég sá bjarka um daginn og já! hann er orðinn frekar stór! Við æðibitarnir erum farnir að skipuleggja ferð til eyja um verslunarmannahelgina og það er eins gott að þú verðir komin heim því þú átt að vera með í þeirri ferð!

Karitas (IP-tala skráð) 24.1.2007 kl. 16:14

7 identicon

Ég samþykki það !   æðibitaferð til eyja getur ekki hljómað illa !!

Ásbjörg (IP-tala skráð) 24.1.2007 kl. 16:28

8 identicon

Ertu ekki ennþá búin að fá pakkann frá mér?

klara (IP-tala skráð) 25.1.2007 kl. 23:34

9 identicon

Nei....

Ásbjörg (IP-tala skráð) 26.1.2007 kl. 07:39

10 identicon

Saelar.. jeijj èg skildi thetta fronskudòt. Jà èg hèlt um daginn fyrirlestur ì svona gòdar 8.mìnutur kannski og var ferskur bara. Franskan er ad koma hjà mèr sem betur fer. Massìf blogg hja ther.. Èg dett stundum hèrna inn en hef aldrei kommentad held èg. Og jà langt sìdan èg hef heyrt ì thèr.. Gangi thèr sem best.

kv.Ìvar

ìvar Egils (IP-tala skráð) 30.1.2007 kl. 06:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband