Laugardagur, 31. mars 2007
Tilvistin og Mallorca...
Eftir ekki svo marga klukkutíma hitti ég mikilvægasta fólkið í lífi mínu = fjölskylduna mína. Langþráð páskafríið er þegar komið og ekki annað en gleði á bæ.
Segið mér ekki að þið hafið aldrei sagt við foreldra ykkar að þið hafið ekki beðið um að fæðast, heldur voru það þau sem gáfu þér líf það er að segja þegar þau eða þú eruð ekki nógu ánægð með ykkur. Ég held að flestir ættu að kannast við þetta. En að sjálfsögðu á góðum dögum erum við ekkert annað en þakklát fyrir að fá að vera til. Við vorum sköpuð eins og við erum en höfum alla möguleika til að þroskast, þróast, breytast og gera betur. Hinsvegar við, mannveran sköpum aðra dauða hluti, sem ekkert fá að segja um tilveruna sína og hafa enga möguleika til að verða eitthvað annað heldur en þeir eru. Erum við ekki bara doldið heppin að fá að vera til, eiga stað í tilverunni. Eða eins og vinur minn hann Jean - Paul Sartre (heimspekingur - tilvistarstefnunnar) orðar svo skemmtilega að okkur sér bara hent út í tilveruna án nokkurra spurninga. Ég sætti mig allavega við að hafa verið hent í þennan heim, hann er ekki svo slæmur eftir allt saman.
Ég óska ykkur bara gleðilegra páska og ég er farin að skemmta mér á Mallorca.
Athugasemdir
Ekki minnkar þessi grein einmanaleikann hjá mér aleinum í Súluhöfðanum. En njótið lífsins á Mallorca, það verður líklega ekki leiðinlegt hjá ykkur.
Kveðja,
Björn Steinar
Björn Steinar Jónsson (IP-tala skráð) 31.3.2007 kl. 14:07
úff.. ég væri til í fara til útlanda núna.. en ég fer út eftir 66 daga! Jibbý!
heh... hafðu það yndislegt á Mallorca! Kossar og knús
Karitas (IP-tala skráð) 1.4.2007 kl. 20:03
Vona að þið fjölskyldan hafið það gott saman í páskafrýinu.. Á meðan verð ég bara uppí skóla að læra allt páskafrýið
Jenni (IP-tala skráð) 2.4.2007 kl. 11:21
óska ykkur góða skemmtun í sólinni. kveðja íris :)
Íris Laxdal (IP-tala skráð) 5.4.2007 kl. 23:37
Gleðilega páska Ásbjörg mín! vona að þú hafir það gott í sólinni og hitanum
Marta Björg (IP-tala skráð) 10.4.2007 kl. 21:32
Gleðilega páska krúttið mitt:*
Elfa (IP-tala skráð) 10.4.2007 kl. 23:03
Meðan ég man hérna eru linkarnir af síðunum sem ég ætlaði að vera löngu búin að senda þér ;) http://tv-links.co.uk/ og http://www3.alluc.org/alluc/ kveðja Íris Laxdal
Íris Laxdal (IP-tala skráð) 11.4.2007 kl. 13:02
Já Ásbjörg mín, maður er nú yfirleitt ánægður með tilveru sína, sem betur fer! Þú getur verið þakklát fyrir að vera svona sæt, klár, hæfileikarík og skemmtileg eins og þú ert! Ekki öllum gefnir svona góðir hlutir í vöggugjöf!
Ég sakna þín ótrúlega mikið! Hafðu það gott á Mallorca :) Bið að heilsa sólinni!
Lilja Björk (IP-tala skráð) 13.4.2007 kl. 09:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.