Ítalía

Mér bauðst það svona upp úr þurru að fara með fótboltanum til Ítalíu.  Ég gerði allar ráðstafanir sem til þurfti og skellti mér til Ítalíu á föstudaginn og kom aftur heim í nótt.  Við gerðum svo ótrúlega mikið að mér finnst eins og ég hafi verið í a.m.k viku.  Ferðin byrjaði ansi skemmtilega en við lentum semsagt í því að minirútan sem við fórum með bilaði þegar eftir voru eins og hálfs klst akstur.  Við eyddum semsagt einum degi á bílaverkstæði í Sviss !  Komið var á áfangastað um 7 leytið á laugardagskvöldinu.  Á sunnudeginum var farið til Feneyja og það var alveg magnað að sjá sjóinn þarna inn á milli húsanna og fólkið ferðast á gandólum á milli.  Þar fannst mér hinsvegar aðeins of mikið af fólki (túristum) og ég gæti engan veginn ímyndað mér að búa þar.  Næsta og síðasta daginn fórum við til Mílanó og var það svona túristaheimsókn, þar sem þeir sem á því höfðu áhuga fóru að versla en aðrir skoðuðu dómkirkjuna og sátu á kaffihúsi og drukku góðan ítalskan expresso.  Veðrið lék nú ekki við okkur allan tímann, við fengum nokkra sólargeisla en rigningin var ansi frek.  Þegar keyrt er í 12 tíma er hinsvegar ekki slæmt að sólin sýni sig ekki neitt of mikið.  Við áttum að koma heim kl 11 í gær en vorum svo heppin að lenda í smá umferðarteppu að ég steig út úr bílnum kl 3 í nótt.   Að ítölskum sið voru máltíðirnar byggðar upp á pizzum og pasta en því miður rann enginn ís niður í magann, sökum sólarleysis og kulda.  Ég átti mjög góða helgi en nú tekur alvaran við í eina og hálfa viku. 

Ég tók eftir einu ansi skemmtilegu.  Í Feneyjum sá ég fullt af fólki frá Brasilíu og það gat maður séð vegna þess að þau voru í peysum merktar Brasilíu eða með fánann vafinn utan um sig.  Hver veit nema að ég hafi séð jafn marga Íslendinga, Dani, Englendinga o.s.frv.  Þeir eru alveg ótrúlegir þessir brassar og alveg ótrúlega stoltir af að vera brassar.  

Annars þá er ég búin að setja inn myndir frá Ítalíuferðinni, njótið.   

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heh... það er nefnilega ótrúlegt hvað Brasilíumenn eru oft merktir landinu sínu.. þeir eru þekktir fyrir það! Vá hvað ég væri til í að fara til Feneyja.. einhvern daginn kannski :) Var eitthvað festival í gangi á ströndinni..?  Bílavesen er alltaf skemmtilegt.. vinkona Birgittu lenti í því um helgina að fyrst dó bíll sem hún og Birgitta voru að keyra í, svo sprakk á hennar eigin bíl á leiðinni upp í bústað til foreldra sinna og svo að lokum sprakk á bíl pabba hennar þegar þau ætluðu að keyra heim!! Án gríns.. ekkert eðlilegt! en jæja! Best að halda áfram að vinna.. ég trúi því ekki að ég sé að eyða sumrinu mínu í þessa vinnu... :'(

Saknaðarkveðjur, Karitas

Karitas (IP-tala skráð) 30.5.2007 kl. 09:44

2 identicon

thessu brassar eru alveg otrulegir ad vera endalaust BRASELIA BRASELIA! i ödrum löndum.. undo!
allavega heppnin var med ther ;) hlakka til ad sja thig eftir einn og halfan manud!

steb (IP-tala skráð) 30.5.2007 kl. 19:18

3 identicon

Geðveikt!! Ég var einmitt á Ítalíu núna um páskana! Það er æðislegt land. Fór meira að segja til Milano og allt, alveg eins og þú! Æðisleg borg! Ég fékk reyndar að upplifa hana í sól og blíðu :P

En vá, þú ert búin að ferðast svo mikið núna! Er ekki nóg fyrir þig að fara til Frakklands stelpa!? (hehe, djók ;) )

Gott að heyra að allt gangi vel! -og takk fyrir commentið á síðuna mína :D

Bæ í bili 

Lilja Björk (IP-tala skráð) 30.5.2007 kl. 23:42

4 identicon

Hehe allt sem tengist á einhvern hátt tækni er bara vesen ! þar með talið tölvur og bílar !  Já það var einhver hátið í Feneyjum, eitthvað sögutengt en ég komst aldrei almennilega að því hvað þetta væri þar sem enginn af okkur talaði ítölsku... 

Já þetta er svona Lilja, maður verður að njóta þess meðan maður er á meginlandi að ferðast út um allt, eins mikið og maður getur.  Því allan hinn tímann erum við föst á lítilli eyju úti í Norður Atlantshafi...

Bless í bili krakkar !

Ásbjörg (IP-tala skráð) 31.5.2007 kl. 06:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband