Þriðjudagur, 18. júlí 2006
Styttist í brottför
Nú styttist óðum í að leið mín liggi til Frakklands. Brottför verður þann 1. september nk. og get ég ekki neitað því að smá fiðringur sé kominn í magann. Ég er komin með fjölskyldu í Norð - austur Frakklandi, nánar tiltekið í Metz sem er við landamæri Luxemborg. Fjölskyldan samanstendur af Claire, Claude og þremur sonum þeirra sem eru allir fluttir að heiman. Þau sóttu þess vegna um að fá tvo skiptinema. Þar verð ég semsagt ásamt stelpu frá Brasilíu, Paulu sem er 17 ára. Við förum í kaþólskan einkaskóla vegna þess að ekki var pláss fyrir okkur í venjulegum skóla.
ása kveður
Athugasemdir
Líst vel á þig skvís. Bara farin að blogga :)
Þetta verður spennandi maður! Verðum í bandi
Stórt knúúúúús frá mér
kv. Guðrún
guðrún (IP-tala skráð) 18.7.2006 kl. 13:05
hæhæ .. Íris Brasilíufari hérna.. úff þú bara komin með síðu og allt.. ég verð að fara að búa mér til eitt stykki svoleiðis:)
Íris Björk Reynisdóttir (IP-tala skráð) 18.7.2006 kl. 16:07
prufa
Guðrún (IP-tala skráð) 21.7.2006 kl. 10:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.