Föstudagur, 15. júní 2007
Tónlist heimsins !
Hvað var í upphafi áður en heimurinn varð til ? Hvaðan kemur þessi stóri listamaður sem bjó til þetta glæsilega listaverk ? Við vitum ekkert og erum ekkert... Við erum á jörðinni sem er ein af plánetum okkar vetrarbrautar sem er ein af milljörðum í alheiminum. Við getum komið með hinar ýmsu getgátur um hitt og þetta en aldrei neitt vitað fyrir víst, það er svolítið óþægileg tilfinning... Getgáturnar geta verið réttar þar til eitthvað annað kemur í ljós...
Heimurinn er eitt risastórt tónverk sem þessi listamaður samdi, það fallegasta sem ég hef nokkurn tímann heyrt. Ég og þú erum nótur sem hljóma ekki eins. Ég er heldur ekki alltaf eins, það fer eftir því hvernig ég er spiluð... Stundum er ég spiluð löng, stundum stutt, stundum á píanó og í enn annað skipti á fiðlu...o.s.frv. Stundum finnst mér ég hljóma vel en oft kemur fyrir að mér finnst ég örlítið fölsk. En í þessu risastóra tónverki er ein nóta ekkert ofboðslega mikilvæg en allar voru settar á blaðið af einhverri ástæðu. Sumar voru settar til að breyta einum kafla aðrar einungis til að hljóma en engu breyta en allar saman breyta tónverkinu; heiminum... Það erum við sem þurfum að átta okkur á því hvernig við gerum mest gagn...hvernig getum við látið þetta tónverk verða ennþá fallegra en það er ? Ef við spyrjum okkur engra spurninga fáum við engin svör. Það er enginn hérna fyrir tilviljun en því miður eru sumir sem halda það og bíða allt lífið á krossgötum... sá fær aldrei nein svör og hljómar ekki sterkt í tónverkinu, jafnvel heyrist ekki. Tónverkið mun halda áfram að eilífu og fyrstu nóturnar sem skrifaðar voru á tómt blaðið í upphafi eru þegar þagnaðar og hvíla sig til að gefa öðrum nótum tækifæri til að taka þátt í tónverkinu, aðrar eru farnar að dofna en gera þó gæfumuninn og geta ef til vill kennt þeim nýju hvernig best er að spila úr því sem við höfum. Við erum hérna til að spila tónlist heimsins...Saman!
Stundum líður mér ekki vel og er ekki örugg með mig, þá er ég fölsk og hljóma ekki vel. Það veltur yfirleitt á nótunum sem í kringum mig eru... og jafnvel blaðsíðunni sem ég er á; umhverfið. Til að ég hljómi vel og til að mér líði vel þarf ég að vera á réttri blaðsíðu og meðal réttra nótna og það þarf ég að finna... Sumar nótur geta hljómað vel hvar sem er og eru óháðar umhverfinu...eða sýnast óháðar en þá oft er það ekki sú rétta nóta heldur annað hlutverk sem sýnir sig. Það hlýtur að vera erfitt að þurfa alltaf að þykjast vera önnur nóta en maður er! Ég vel að velja mér umhverfið og þegar ég er meðal nótna sem mér líður ekki vel með er ég ekki spiluð rétt og þær nótur fá ekki að kynnast mér eins og ég er... En hinar fá hins vegar að kynnast mér rosalega vel og kunna þá betur að meta það sem ég er, hvernig ég er spiluð...
Ykkur finnst ég kannski spyrja mig of margra spurninga...en svörin fylgja spurningunum jafnvel þó bíða þurfi eða leita vel, það er svona sem mér mun takast að velja réttu molana!
Nú ætti ég að þekkja París betur en lófann á mér, söfn voru vel heimsótt, búðir fengu ekki mikla athygli og fæturnir fengu vel að þreytast og kynnast hverfum Parísar... Ég féll kylliflöt fyrir ákveðnum hverfum og við komumst að því að París er ekkert svo stór allavega ekki þegar metro er vel notað. Þessu fylgja að sjálfsögðu myndir sem eru inni á myndasíðunni minni.
Í dag er mánuður þangað til að ég yfirgef heimilið mitt, fjsk og vini...en finn þó gamalt heimili, gamla fjsk og gamla vini sem mun þó mér virðast nýtt eftir eins árs fjarveru.
Athugasemdir
skemmtilegur pistill sem þú ert búin að skrifa.. kom heilanum í gang.. þetta sem þú ert búin að skrifa er mjög rétt hjá þér, persónugerfingin skilaði sér mjög vel
en já.. það er mánuður í að þú komir heim, mig hlakkar mjög til að fá að sjá þig aftur eftir allan þennan tíma, þá fæ ég kannski að bjóða þér á kaffihús og við getum skipst á sögum..
Jenni (IP-tala skráð) 16.6.2007 kl. 14:49
Hæ Hæ elsku Ásbjörg:)
Alltaf gaman að lesa um það sem þú hugsar og gerir:)
Hlakka svo til að þú komir heim:)
Ég verð að heyra í þér og segja þér fréttir;) æðislegar fréttir:)
Þykir vænt um þig :*
kv. þín vinkona Tinna
Ásbjörg (IP-tala skráð) 17.6.2007 kl. 01:05
Ekki spurning, ég mun eiga nóg af sögum ! Ég hlakka líka til að hitta ykkur þó svo að smá partur af mér langi ekki heim...
Mig langar að heyra æðislegar fréttir !
Þó svo að ég komi heim eftir einn mánuð þá megið þið alveg halda áfram að vera dugleg að kommenta
Ásbjörg (IP-tala skráð) 18.6.2007 kl. 08:11
Athyglisverðar pælingar, þurfti reyndar að lesa þetta þrisvar í gegn til að ná þessu, eitt vakti samt athygli mína... ,,...En í þessu risastóra tónverki er ein nóta ekkert ofboðslega mikilvæg..." Til að tónverkið hljómi fullkomlega eða þ.e.a.s. heimurinn þá verður maður að gera sér grein fyrir mikilvægi hverra nótu, hver ein og einasta nóta er mikilvæg til að heimurinn sé fallegur staður.... Æji vona að þú fattir hvað ég á við...
Skemmtu þér alveg rosalega vel ;) Hlakka til að hitta þig þegar þú kemur heim...
Hilsen
Stjáni
Stjáni (IP-tala skráð) 19.6.2007 kl. 17:25
Já sko, þetta er ansi flókið, ein og sér er nótan ekki mikilvæg en þegar hún kemur saman með öllum hinum nótunum verður hún mikilvæg...
Kv. Ásbjörg
Ásbjörg (IP-tala skráð) 19.6.2007 kl. 18:24
Hæ Hæ elsku Ásbjörg:)
Vá hvað það var gaman að heyra í þér í gær:) hefðum getað talað endalaust:)
En allar hinar sögurnar sem við náðum ekki að spjalla um verða sagðar 17. júlí og eftir það:)
Sá að þú skrifaðir inná síðuna hjá litlu dúllunum mínum:) Takk fyrir það:) Roslega sætt sem þú skrifaðir:),,, finnst þér hún ekki mikil krúsidúlla?,,,, hver veit nema maður endurtaki að fara saman til Danaveldis aftur:) Man hvað ferðin okkar var skemmtileg,, vá vá vá:)
Bless bless Ásbjörg mín:)
Heyrumst og sjáumst
kv. frá þinni vinkonu Tinnu
Tinna Pálma (IP-tala skráð) 19.6.2007 kl. 19:39
Það er ekki slæmt að hafa nóg að segja ! En jú hún er alveg rosalega falleg hún litla frænka þín, mesta dúlla !! Það væri nú ekki af verri endanum að fara aftur saman til DK. Koss og knús !
Þín vinkona,
Ásbjörg
Ásbjörg (IP-tala skráð) 20.6.2007 kl. 07:48
Skemmtileg grein, athyglisverð pæling skvís. Hlakka ekkert smá til að sjá þig að mánuði liðnum og svo LONDON BABY ;)
Elfa (IP-tala skráð) 21.6.2007 kl. 00:14
Hæ elsku Ásbjörg. Nú er ég komin heim frá Spáni og komin aftur í vinnuna... búhú.. hefði sko viljað vera úti það sem af er sumars! :) Flottur pistill að vanda og alveg sérlega djúpur í þetta skiptið. Ég kann vel að meta hvernig þú ert spiluð ;)
Karitas (IP-tala skráð) 21.6.2007 kl. 14:58
Vá Ásbjörg. Hefur þér einhvern tímann dottið í hug að skrifa bók? Þú ert nú meiri listamaðurinn! Mjög vel skrifað, fékk mig til að sjá heiminn í skemmtilegu ljósi!
En gvöð hvað ég hlakka til að fá þig heim sætabrauð! Og fara til London. Það er kvöl að þurfa að bíða svona lengi :P Reyndu bara að njóta þessara síðustu frakklandsdaga til hins ýtrasta! Vertu glöð og kát og skemmtu þér ;)
Kveðja,
Liljanðín
P.S.
Ég sá að mamma þín hafði lagt inn á mig fyrir leikhúsmiðanum. Takk fyrir það!
Lilja Björk (IP-tala skráð) 23.6.2007 kl. 21:38
Það er alltaf gaman að sjá heiminn í skemmtilegu ljósi, það finnst mér allavega ! Ég vona að þið hafið ekki sokkið of djúpt...
Von á nýju bloggi...
ein af síðustu Frakklandskveðjum mínum...
Ásbjörg
Ásbjörg (IP-tala skráð) 23.6.2007 kl. 22:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.