Sunnudagur, 15. júlí 2007
Leyndarmál perlanna...
Perlur er ekki auðvelt að finna... þær finnast þó einstaka sinnum, þegar heppnin er með manni. Yfirleitt er hægt að þekkja þér á þeirri hamingju sem þær veita þér, hversu fallegar þær eru og best af öllu er að þær láta þér líða eins og einni...
Perla er eitthvað illfinnanlegt, fallegt, verðmætt, mikilvægt og líkurnar á að finna eina eru óendanlega litlar ! Í Frakklandi fann ég perlufjölskyldu ! Þvílík heppni, þvílík tilviljun (ég trúi reyndar ekki á tilviljanir), þvílík paradís!
Þegar nokkrar perlur koma saman gerist eitthvað ólýsanlegt, kraftaverk... Perlum kemur alltaf vel saman og þær geta myndað líf sem alla dreymir um að lifa og sem deyr aldrei. Þær bjuggu til eitthvað saman, fallegt, sem sést alla leið frá himnum. Þær bjuggu til stjörnu sem skín svo skært, sem mun aldrei dofna, aldrei slokkna.
Þegar kemur að kveðjustund perlanna mun kraftur ljóssins lifa að eilífu og hver perla mun hafa lært eitthvað af þessum kynnum. Þær munu án efa geyma perluna í sjálfri sér í hjarta sér þar sem allir fallegu hlutirnir eru geymdir. Ég lærði að ég er líka perla...
Ég þakka perlunum fyrir mig en Guði þakka ég fyrir perlurnar...
Það hefur ekki enn verið varpað ljósi á það besta. Ég hef heyrt að á Íslandi finnist af og til demantar, þá er víst ennþá erfiðara að finna heldur en perlur. Í Súluhöfða 16 bíður mín víst gersemd ein... Þann 17.júlí mun ég vonandi finna þá aðstandendur og vini sem eru mér næst og þá sem láta mér líða eins og mikilvægasta demantinum.
Þá er komið að lokum þessa frábæra ævintýris, eftir 3 tíma mun ég skilja aðstandendur héðan eftir með tárin í augunum á brautarpallinum. Síðasta nóttin í rúminu mínu liðin, síðasta máltíðin að ganga í garð, síðustu kossarnir í kjölfarið, tárin rata fljótt niður kinnarnar og ég segi bless og takk fyrir mig! En heilsa á ný, þriðjudaginn þann 17. júlí, kl 15:45 á Keflavíkurflugvelli.
Athugasemdir
Fallegt hjá þér, og velkomin heim til Íslands.
Þröstur Unnar, 15.7.2007 kl. 08:50
mig hlakkar svo til að fá að sjá þig aftur.. ég vona að það verði sem allra fyrst
Jenni (IP-tala skráð) 15.7.2007 kl. 14:06
Fékk alveg gæsahúð yfir því að lesa þetta. Mjög einlega sagt og beint frá hjartanu. Mjög fallegt.
Vonanadi hittumst við bráðlega, allavegana vona ég það ;)
Bestu kveðjur
Gunnar Magnús
Gunnar Magnús (IP-tala skráð) 15.7.2007 kl. 17:16
Góða ferð heim :)
Steingrímur Páll (IP-tala skráð) 15.7.2007 kl. 18:14
hlakka svo til að sjá þig! ég mæti sko bókað á þriðjudaginn, engin spurning!
knús og kossar og góða ferð! :*
Guðrún Ásdís (IP-tala skráð) 15.7.2007 kl. 19:44
jii...ég varð alveg klökk á að lesa þetta. Þú ert algjörlega búin að vera að standa þig í bloggskrifum undanfarið ár, vona að þú sért ekkert að fara að gefa eftir þó að þú sért á heimleið! Hlakka til að sjá þig
Anna Bryndís (IP-tala skráð) 15.7.2007 kl. 20:36
úff ég hlakka svo til að sjá þig aftur, bíð spennt eftir morgundeginum! en annars er þetta alveg rosalega fallegt blogg hjá þér hér fyrir ofan. Sjáumst á morgun elsku vinkona:) kv Heiða. p.s. eigðu góða ferð heim!
Heiða (IP-tala skráð) 16.7.2007 kl. 14:04
Guð minn góður Ásbjörg. Núna er ég að gráta. Hvernig geturðu lýst þessu svona fallega?
-Hlakka til að sjá þig á morgun! Á MORGUN! Pældu í því!!?
Lilja Björk (IP-tala skráð) 16.7.2007 kl. 23:31
Velkominn heim Ásbjörg
Friður
Stjáni
Stjáni (IP-tala skráð) 18.7.2007 kl. 17:09
ertu með eitthvað gemsa númer svo að maður geti náð í þig.. gamla númerið virkar ekki
Jenni (IP-tala skráð) 18.7.2007 kl. 18:06
úff... það var bara erfitt að lesa þetta og halda andliti.
Ekkert smá gott að þú sért komin heim, loksins er hópurinn aftur orðinn heill
Ég segi það sama og Jenni... Hvert eigum við að hringja?? ;o)
Karitas (IP-tala skráð) 18.7.2007 kl. 19:50
Ég er komin aftur með gamla númerið mitt, ég fékk það í gærkveldi!
Ásbjörg (IP-tala skráð) 19.7.2007 kl. 07:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.