Sunnudagur, 20. ágúst 2006
Frakkland ekki langt undan...
Nú er ekki ýkja langt í að dvöl mín í Frakklandi hefjist, í dag eru 11 dagar þangað til ég fer af landi brott. Það er semsagt búið að breyta brottfarardeginum, ég fer 31. ágúst kl 7:40 en ekki 1. sept eins og áður hefur komið fram. Spennan magnast en einnig stressið. Ég er með "feitan" fiðring í maganum, sem er að sumu leyti gaman.
Nú fer skólinn að hefjast hjá MH-ingum, skrýtið að vera ekki að byrja í skólanum, en ansi huggulegt þó. Ég er búin að selja bækurnar mínar og ætla svo að kaupa mér bunka af frönskum orðabókum fyrir innleggsnótuna.
Ég hef þegar planað dagana þangað til ég fer og verð að segja að það er ekki mikill tími aflögu, nánast allt bókað : matarboð, út að borða, kaupa gjafir, hitta vinina, keppa, æfa, vinna smá, vera með fjölskyldunni, pakka og síðast en ekki síst slaka aðeins á (það er víst nauðsynlegt).
Ég er búin að setja inn nokkrar myndir frá Verslunarmannahelginni á Akureyri. Þær eru inni í Albúm, undir "Verslunarmannahelgin". Njótið.
Ásbjörg kveður að sinni
Athugasemdir
Vá hvað er orðið stutt í ferðina hjá þér Ásbjörg mín. Vona að þú notir dagana vel áður en að þú ferð ;)
Jenni (IP-tala skráð) 23.8.2006 kl. 10:58
Varstu á Akureyri um Verslunarmannahelgina?? hitti ég þig???
Erla (IP-tala skráð) 23.8.2006 kl. 16:10
Já ég var á akureyri um verslunarmannahelgina, en nei, þú hittir mig ekki :P haha
Ásbjörg (IP-tala skráð) 23.8.2006 kl. 18:16
Sjæse Ása mín!! þú ert bara að fara frá okkur í ÁR!!! díses!!! ég byrja að flytja dótið mitt í herbergið þitt bara rétt eftir helgi... ;) hehe
Góða skemmtun og vertu dugleg að blogga, þá skal ég lofa að vera dugleg að kommenta! ;)
Luuuuv - Ásta fótboltagella :D
Ásta Margrét (IP-tala skráð) 28.8.2006 kl. 17:16
Ég verð dugleg að blogga, ekki spurning ! Já ekki málið, herbergið er þitt ;)
Ásbjörg (IP-tala skráð) 29.8.2006 kl. 01:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.