Sunnudagur, 29. október 2006
Vænlegt haustfrí !
Þessa vikuna hef ég haft meira en nóg að gera. Á miðvikudaginn var byrjaði ég semsagt í nærri því tveggja vikna haustfríi, sem er rosalega notalegt. Og þann sama dag var ball skipulagt af einhverjum öðrum skóla en við Paula skelltum okkur með einni stelpu úr bekknum okkar. Það var rosalega gaman, ég dansaði eins og ég ætti lífið að leysa. Þetta er örlítið ólíkt heima á Íslandi, þarna voru krakkar frá 15-18 ára og allir að drekka á ballinu, það er "leyfilegt" hérna. Svo er dansað uppi á borðum og stólum og verulega sveitt andrúmsloft og já öðruvísi tónlist. En fyrir öllu er að ég skemmti mér mjög vel og við komum ekki heim fyrr en um 5 leytið. Daginn eftir var svo engin pása, fórum í matarboð til konu sem vinnur með Claire og eyddum öllum deginum þar. Á föstudaginn hittum við svo aðra skiptinema sem eru með Rotary Club og eyddum öllum deginum einnig með þeim, borðuðum, fórum í bíó og á kaffihús.
Á mánudaginn birtist óvæntur gestur á heimilið, eða það er að segja fósturbróðir minn Thomas. Hann mun eyða fríinu sínu hérna. Hann er rosalega skemmtilegur og erum búin að fara í eitt partý með honum sem var líka rosa fínt, sungið og spjallað. Það er víst eitthvað sem er sameiginlegt með flestöllum löndum. Á miðvikudaginn fengum við svo annan óvæntan gest en það er strákur frá Austurríki, Gerhard sem er að fara að skipta um fjsk. og dvelur hérna þangað til nýja fjsk. tekur á móti honum eða í viku.
Helgin hefur svo farið í það að spila fótbolta svo ekki sé meira sagt.
Í nótt græddi ég einn klukkutíma vegna þess að við skiptum úr sumartímanum.
Annars hef ég það bara gott þó svo að suma daga sé þetta örlítið erfitt, en þegar dagarnir eru svona troðfullir hefur maður engan tíma til að hugsa um erfiðleikana en þegar ekkert er að gera þá hefur maður tíma til að hugsa og allt er svo tómlegt. Það er samt ekkert nema eðlilegt og ég reyni bara að njóta lífsins.
Ásbjörg
Athugasemdir
Nohh! þú ert bara að komast í djammgírinn;) Hljómar bara eins og íslenskt partý sem þú fórst í... Það er aldeilis að fjölskyldan þín er opin fyrir að taka krakka inn á sig, the more the merrier:) Kossar og knús!
Karitas (IP-tala skráð) 30.10.2006 kl. 00:21
Ég vona að þér líði sem best Ásbjörg mín. Það er gott að þú hefur mikið að gera með tímann þinn :)
Það er líka gott að heyra að þú sért byrjuð að djamma eins og sannur Íslendingur :)
Ég þarf síðan að senda þér heimildarmyndina sem ég er búinn að vera að taka upp og vinna.. sendi þér hana í gegnum msn við tækifæri ;)
Jenni (IP-tala skráð) 30.10.2006 kl. 09:12
Já ég er komin í djammgírinn, en hann er eilítið öðruvísi en heima... já það væri gaman að fá að sjá myndina þína :D
Ásbjörg (IP-tala skráð) 30.10.2006 kl. 12:42
Æji en gaman! Hugsa sér að það megi drekka á skólaböllunum þarna úti! Þvílíkur lúxus! Var fólk að haga sér eitthvað verr á þessu balli heldur en á hinum "áfengislausu" skólaböllum hér, ég bara spyr?!?
Frábært hvað allt er gaman og gengur vel.
Það er svo skiljanlegt að þér finnist tómlegt þegar gefst tími til að hugsa. Mér finnst líka sjúklega tómlegt hér! Ég sakna þín ekkert smá! *Knús* -Það sakna þín allir.
En ég veit að þú mundir aldrei vilja hafa sleppt því að fara, þetta gefur svo mikið! Þú átt eftir að koma heim með fullt fangið af reynsu, gleði og þroska! Ég get ekki beðið ;)
Lilja Björk (IP-tala skráð) 30.10.2006 kl. 13:37
Hæhæ elsku Ásbjörg mín... gaman að þú hafir það gott þarna úti... mundu bara að það bíða allir spenntir eftir að fá þig home... :) kv. Anna Sigga
Anna Sigga (IP-tala skráð) 31.10.2006 kl. 11:27
Sit núna á bókasafninu í MH, sem er btw komið í salinn
útaf framkvæmdum, hehe. En er að reyna að klára þessa ritgerð fyrir ísl403. Nokkrir fleiri hérna inni með sama vandamál, allavega tvær aðrar stelpur, ekki bara ég sem er alltaf með allt á síðasta snúningi
. en gott að heyra frá þér, sakna þín ekkert smá mikið, vantar þig svo oft til að tala við ... en ætli ég endi ekki á að senda ritgerðina á e-maili til kennarans í kvöld.. betra seint en aldrei. jæja, matarhlé komið og ritstífla líka (greinilega ekki hérna samt
) Bless í bili!!
Klara (IP-tala skráð) 31.10.2006 kl. 12:06
Hehe nei ef eitthvað er var fólk að haga sér betur vegna þess að þeir hella ekki í sig áður en þeir fara á ballið.... þetta er mun sniðugra ;) Ég sakna ykkar stelpur :(
Ásbjörg (IP-tala skráð) 31.10.2006 kl. 19:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.