Laugardagur, 2. september 2006
Arrival camp !
Nú er "arrival campið" hafið og hefur nánast tekið enda. Við fórum semsagt í gær á nýtt hótel þar sem allir skiptinemarnir sem munu vera í ár í Frakklandi eru, við erum um 260 að ég held, rosa mikið af fólki. Voða gaman, maður hittir nýtt fólk og spyr bara að því hvað það heitir, hvaðan það er og hvar það verður í Frakklandi. Svo verður bara vandræðaleg þögn.
Við Íslendingarnir erum svo miklir hlunkar ; við erum alltaf svöng, það er borðað kl 8, hálfeitt og svo 7, það nægir okkur ekki og við gerum ekki mikið annað en að segja hvað við erum svöng. Svo er maturinn ekkert alltof góður á þessu hóteli svo við borðum ekki einu sinni mikið þegar við borðum. Borðum aðallega kál og drekkum klórvatn
Fórum inn í París í dag að skoða Eiffelturninn, Sigurbogann og Notredame. Alveg frábært, tók fullt af myndum og myndavélin orðin batteríslaus.
Kl 9:45 í fyrramálið tek ég rútu upp á lestarstöð og svo lest til Metz, þar sem "mamman" mun taka á móti okkur kl 4. Er orðin ansi spennt og hrædd og stressuð og allt en hlakka líka svaka til...
Au revoir !
Ásbjörg/ Ása
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Fimmtudagur, 31. ágúst 2006
Bienvenue á la ville d'amour !
Þetta er einn erfiðasti dagur sem ég hef upplifað lengi Hér kemur ferðasagan eins og hún leggur sig !
Hittumst upp á flugvelli kl 5:15 og fengum okkur að borða svona um hálfsjö svo var bara drifið sig upp í vél og við tók rúmlega þriggja tíma flug, það var voða gaman hjá okkur á leiðinni. Jæja svo komum við til Parísar kl 11 eða kl 1 á okkar tíma. Biðum heillengi eftir töskunum, allir búnir að fá töskurnar nema við og svo var Sonja með gítar sem skilaði sér ekki og við þurftum að vera með þvílíkt vesen til að fá hana. Svo var okkur sagt að við ættum að fá einhvern stimpil sem staðfesting á því að við hefðum komið í landið, en það var erfiðara en að segja það og stelpan sem tók á móti okkur gat heldur ekki reddað því og sagði að það skipti bara engu máli. Svo við ferðuðumst með töskurnar okkar svona 10 ferðir upp og niður lyftuna. Þá átti einhver rúta að koma að sækja okkur en við fundum hana ekki :S svo kom í ljós að hún var þarna, tveggja hæða rúta fyrir 9 manneskjur
keyrðum í tæpa klst. og fengum að vita að námskeiðið byrjar ekki fyrr en á laugardaginn og við send á eitthvað gistiheimili. Okkur leist nú bara vel á það, þangað til við komumst að því að við megum ekkert fara út, máttum ekki einu sinni fá okkur að borða eða neitt. Þá var kl 4 og matur ekki fyrr en kl 7 og við ekki búin að borða síðan um morguninn uppá keflavíkruflugvelli
erum að deyja úr hungri og öll pirruð og þreytt. Vorum að tala um að okkur líður eins og við séum í fangelsi, fyrir utan það að við höfum góðan félagsskap. Svo er þráðlsut net hérna en nei þá hafði ég gleymt netkortinu heima
er í tölvunni hennar öldu, sem er alveg að bjarga okkur. Nú er bara 10 min í matinn
yess.
Ég kveð í bili,
Ásbjörg á skítugu og subbulegu hótelherbergi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Miðvikudagur, 30. ágúst 2006
Ótrúlegt en satt !
Nú er biðin nánast á enda. Það er innan við sólarhringur þar til ég verð komin upp á Keflavíkurflugvöll á leið til PARÍSAR ! ótrúlegt... ég er búin að fá afhendan miðann og afskaplega flotta AFS mittistösku
þetta er orðið mun raunverulegra núna, hef samt ekki áttað mig á því að eftir nákvæmlega sólarhring verð ég stödd í Frakklandi. Ég kem til með að hitta tilvonandi fjölskylduna mína á sunnudaginn kemur á lestarstöðinni um 4 leytið, eftir vonandi frábæra helgi í París.
Ég er ekki frá því að erfitt sé að koma fyrir ársbirgðum af fötum í ferðatösku sem má einungis vega 20 kg. Sem þarf ekki að vera svo slæmt þar sem það gefur mér betri ef ekki góða ástæðu til að kaupa mér góðan slatta af fötum. Ég held ég láti mömmu og pabba senda mér lopapeysu og úlpu þegar kólna fer, það tekur of mikið pláss.
Ég hélt gott kveðjuhóf fyrir nánustu vini og aðstandendur, það stóð undir væntingum. Ég skemmti mér konunglega og veit að flestir gerðu það einnig. Á mánudaginn var mér svo boðið út að borða af henni Valgerði, fórum á Vegamót og fengum mjög góðan mat. Svo kíktum við stelpurnar í bíó á You, me and Dupree, hún var ágæt afþreying, ekkert meistaraverk(enda ekki búist við því). Í gær átti svo Klara vinkona afmæli og var mér boðið í Fajitas heima hjá henni og stelpurnar kíktu svo í kökuboð og þá var einning kveðjustund, sem mér þótti ansi skrítið. Var samt ekki alveg að átta mig á þessu...
Björn Steinar kom aftur heim í gær og voru miklir fagnaðarfundir Stefnan er svo tekin á að eyða síðasta kvöldinu með fjölskyldunni. Býst ekki við að mikið verði sofið í kvöld/nótt þar sem flugið er kl 7:40 og sökum þess að spennan er í hámarki.
Ég kveð í bili, Paris here I come
Ásbjörg
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 20. ágúst 2006
Frakkland ekki langt undan...
Nú er ekki ýkja langt í að dvöl mín í Frakklandi hefjist, í dag eru 11 dagar þangað til ég fer af landi brott. Það er semsagt búið að breyta brottfarardeginum, ég fer 31. ágúst kl 7:40 en ekki 1. sept eins og áður hefur komið fram. Spennan magnast en einnig stressið. Ég er með "feitan" fiðring í maganum, sem er að sumu leyti gaman.
Nú fer skólinn að hefjast hjá MH-ingum, skrýtið að vera ekki að byrja í skólanum, en ansi huggulegt þó. Ég er búin að selja bækurnar mínar og ætla svo að kaupa mér bunka af frönskum orðabókum fyrir innleggsnótuna.
Ég hef þegar planað dagana þangað til ég fer og verð að segja að það er ekki mikill tími aflögu, nánast allt bókað : matarboð, út að borða, kaupa gjafir, hitta vinina, keppa, æfa, vinna smá, vera með fjölskyldunni, pakka og síðast en ekki síst slaka aðeins á (það er víst nauðsynlegt).
Ég er búin að setja inn nokkrar myndir frá Verslunarmannahelginni á Akureyri. Þær eru inni í Albúm, undir "Verslunarmannahelgin". Njótið.
Ásbjörg kveður að sinni
Bloggar | Breytt 21.8.2006 kl. 01:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Fimmtudagur, 3. ágúst 2006
Góð helgi framundan
Kl. 18:00 munu þrír af æðibitunum leggja land undir fót og er ferðinni heitið norður í land, nánari staðsetning; Akureyri - ein með öllu. Loks er biðin á enda eftir þessari langþráðu helgi og á sama tíma gerast aðrir hlutir; styttist í Frakklandsför
29 dagar,
3 klst og 5 mín og 35 sek; hef þetta ekki svona nákvæmt, því miður.
Aftur að Akureyri - ætlum semsagt að hittast hjá húsasmiðjunni, rúmfatalagernum og bónus í smáranum. Þar ætlum við að; sækja Mörtu í vinnuna, kaupa tjald og versla inn - allt á sama staðnum; sniðugt svo þarf ekki að segja meira en þetta, útilega og djamm
Undir lokin langar mig að benda ykkur á að ég hef sett myndir af bænum mínum og kort inn í myndaalbúm.
Ása out
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 26. júlí 2006
Úff
Frá og með deginum í dag eru einungis 36 dagar þar til ég verð á leiðinni til Frakklands. Ég verð þrjá daga í París og verð komin til fjölskyldunnar þann 3. september.
Au revoir !
Ása
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 21. júlí 2006
Fjölskyldan mín í Frakklandi
Claire er hjúkrunarfræðingur í skóla og er 51 árs.
Claude er 50 ára hann er verkfræðingur og vinnur mikið, er stundum í burtu 2-3 daga vikunnar.
Þau hjóla mjög mikið, og eru mjög "fit". Þau eiga þrjá syni, þá :
Xavier er 26 ára og vinnur hjá sínu eigin fyrirtæki sem heitir IPCUBE. Hann á kærustu sem heitir Fanny og hún er ólétt og á von á sér á janúar, svo ég verð viðstödd þá.
Alain er 24 ára og ásamt Héléne býr hann í Marseille en er á leið til Montreal (Kanada) í eitt ár. Hann er listamaður en hún spilar á selló.
Thomas er 21 árs og er að læra að verða smiður. Hann flyst á milli staða á hálfs árs fresti (vegna vinnu) nýlega hefur hann verið í Perigueux sem er í suð - vestur Frakklandi.
Ég og Paula förum í eins áður sagði kaþólskan einkaskóla sem heitir Jean XXIII.
Þau búa í Montigny les Metz sem er úthverfi Metz og ekki svo langt frá Nancy.
Paula er 17 ára og býr í Vitoria í Brazilíu, henni finnst gaman að fara í ræktina og að lesa bækur. Foreldrar hennar eru læknar og hún ætlar í læknisfræði. Hún hefur aldrei smakkað áfengi né reykt og er voða góð stelpa, heyrist mér.
Ásbjörg
Bloggar | Breytt 26.7.2006 kl. 15:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Þriðjudagur, 18. júlí 2006
Styttist í brottför
Nú styttist óðum í að leið mín liggi til Frakklands. Brottför verður þann 1. september nk. og get ég ekki neitað því að smá fiðringur sé kominn í magann. Ég er komin með fjölskyldu í Norð - austur Frakklandi, nánar tiltekið í Metz sem er við landamæri Luxemborg. Fjölskyldan samanstendur af Claire, Claude og þremur sonum þeirra sem eru allir fluttir að heiman. Þau sóttu þess vegna um að fá tvo skiptinema. Þar verð ég semsagt ásamt stelpu frá Brasilíu, Paulu sem er 17 ára. Við förum í kaþólskan einkaskóla vegna þess að ekki var pláss fyrir okkur í venjulegum skóla.
ása kveður
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)